CMA CGM er eitt stærsta og öflugasta skipafélag í heimi. TVG-Zimsen er umboðsaðili fyrir CMA CGM á Íslandi og því getum við boðið upp á hagstæðar og öruggar heilgámalausnir um allan heim, hvort sem það er 20ft, 40ft eða 40ft HC.
Með góðu samstarfi tryggjum við pláss í skipum úti og lausa gáma í lestunarhöfnum.
Viðskiptavinir TVG-Zimsen geta því ávallt treyst á skjóta og örugga flutninga á vörum til og frá Asíu, Afríku, Ástralíu, Kanada, Norður-Ameríku og Suður-Ameríku.
Við hjá TVG-Zimsen bjóðum upp á alhliða þjónustu með CMA CGM:
- Innflutning
- Útflutning
- Crosstrade (flutningur utan Íslands)
Árið 2010 flutti CMA CGM 9 milljónir gámaeiningar. 396 skip á þeirra vegum komu við í 400 höfnum í 150 löndum.