TVG-Zimsen annast vöruflutninga til og frá Íslandi með sjó og flugi, víðsvegar að úr heiminum. Starfsfólk sölu-og þjónustudeildar TVG-Zimsen veitir ráðgefandi þjónustu um val á flutningsmáta með tilliti til flutningsmagns, flutningshraða og flutningskostnaðar.
Í samstarfi við reynslumikla erlenda og innlenda aðila bjóðum við traustar og öruggar flutningslausnir og flutningsleiðir, allt frá dyrum sendanda erlendis að dyrum móttakanda hérlendis.
Okkar metnaður er að veita ávallt framúrskarandi og persónulega þjónustu og geta jafnframt veitt viðskiptavinum okkar upplýsingar um stöðu sendinga þeirra meðan á flutningaferlinu stendur.
Sendu okkur póst á service@tvg.is eða hafðu samband í síma 5 600 777 og við finnum réttu lausnina fyrir þig.