Starfsfólk TVG-Zimsen er með margra ára reynslu í tollskjalagerð og tekur að sér alla þá þjónustu sem snýr að tollafgreiðslu vörusendinga til landsins. Boðið er upp á tollflokkun, gerð tollskýrslna, innlausn úr tolli og heimkeyrslu.

 

Fylgiskjöl sem þarf að leggja fram með tollskýrslu eru þessi helst:

 

  • Farmbréf „Original Bill of Lading“
  • Vörureikningur
  • Pökkunarlisti
  • Reikningur fyrir flutningsgjöld

 

EUR-skírteini eða EUR-áritun ef um er að ræða vöru frá EFTA eða ESB-löndum


Senda beiðni um tollskýrslugerð.

Senda beiðni um útflutningsskýrslu.

Umboð til TVG-Zimsen um gjaldfærslu á aðflutningsgjöldum getur þú prentað út, undirritað og sent á fax 5 600 780 til tollskjalagerðar. Ef undirritað umboð er ekki fyrir hendi þarf að greiða aðflutningsgjöld fyrirfram. Fylgiskjöl og undirskrifað umboð þarf að senda á fax 5600780 til þjónustufulltrúa í tollskjalagerð.

Prenta út umboð fyrir skuldfærsluheimild.

Fylgiskjöl og undirskrifað umboð þarf að senda á fax 5 600 780 til þjónustufulltrúa í tollskjalagerð.