Sundahöfn í Reykjavík er stærsta vöruhöfn á Íslandi. Þar er miðstöð vörumóttöku og vöruafgreiðslu TVG-Zimsen á höfuðborgarsvæðinu. Í Vöruhótelinu starfar fólk með sérþekkingu á flutningsmálum sem er reiðubúið til aðstoðar og veitir upplýsingar um allt sem snýr að flutningum.
Í Sundahöfn er boðið upp á alhliða vöruhúsa- og birgðahaldsþjónustu í Vöruhótelinu ehf.
Boðið er upp á hvers kyns birgðahaldsþjónustu, bæði fyrir almenna vöru og sérhæfðan varning. Um er að ræða bæði tollafgreidda vöru og vöru sem ekki hefur verið tollafgreidd.
Vöruhótelið ehf. annast geymsluþjónustu fyrir TVG-Zimsen á höfuðborgarsvæðinu. Þar er viðskiptavinum boðið að geyma vörur við bestu skilyrði. Í vöruhúsinu er hitastig um 14°C, sem er kjörhiti fyrir flestar tegundir þurrvöru. Auk þess er boðið upp á geymslu á kæli- og frystivöru og geymslu á vöktuðu og afgirtu útisvæði sé þess óskað.
Nánari upplýsingar eru veittar í viðskiptaþjónustu í síma 5 600 777 eða hjá Vöruhótelinu ehf. í síma 5 122 100.