TVG-Zimsen sér um umsjón, pökkun og flutninga á listaverkum til og frá landinu sem og innanlands. Listaverkaflutningar eru vandasamir og krefjast þess að fyllsta öryggis sé gætt á öllum stigum flutningaferilsins. Oft á tíðum er um gífurleg verðmæti að ræða.
 
Starfsemin er fólgin í að annast pökkun listaverka til flutnings, skv. fyllstu öryggisstöðlum, í rammgerða trékassa, bókun á flutningi, sérstakri tollmeðhöndlun og flutningi erlendis til móttakanda í samstarfi við viðurkennda listaverkaflutningsaðila erlendis. Einnig er þessi sama þjónusta í boði vegna flutninga milli staða innanlands. Í langflestum tilfellum þarf að “klæðskerasauma” pakkningar, sérsmíða kassa og hafa tiltækt sérhæft pökkunarefni til að tryggja öryggi í flutningi listaverkanna.
 
TVG-Zimsen stýrir einnig flutningum á erlendum listsýningum sem eru að koma hingað til lands tímabundið, allt frá geymslum safna erlendis og inn á gólf sýnenda hér á landi. Til að gæta fyllsta öryggis eru flutningar eingöngu í samstarfi við viðurkennda aðila erlendis. Fylgst er með hverjum þætti í flutningsferlinu og náið samstarf og samvinna höfð við flutningsaðila hverju sinni.
 
TVG-Zimsen er með geymslu og pökkunarhús með fullkomnu öryggiskerfi. Nánari upplýsingar veitir Helgi Bjarnason, helgi@tvg.is, sími: 5 600 740.​