Sjódeild TVG-Zimsen býður viðskiptavinum sínum uppá vikulegar siglingar frá Evrópu.  
 
„Suðurleiðin“ sem við gjarnan nefnum „mánudagsskipið“ lestar Rotterdam á miðvikudögum, Immingham á fimmtudögum og er til losunar í Reykjavík á mánudögum.  „Norðurleiðin“ sem við gjarnan nefnum „þriðjudagsskipið“ lestar í Hamborg á þriðjudögum, Helsingborg á fimmtudögum, Aarhus á föstudögum og er til losunar í Reykjavík á þriðjudögum.

Við bjóðum einnig upp á siglingar á tveggja vikna fresti frá Bandaríkjunum og höfum afar góða samstarfsaðila í Mið-Austurlöndum sem og í Austurlöndum fjær. 
 
Þú getur treyst því að við finnum hentugustu lausnina fyrir þig.  Ekki hika við að hafa samband í síma 5 600 777 og/eða kynnið ykkur þá þjónustu sem við höfum upp á að bjóða hér á heimasíðunni.