TVG-Zimsen sér um móttöku og afgreiðslu á umhleðslusendingum (transit) sem þarf að afhenda, án greiðslu aðflutningsgjalda, um borð í erlend skip og flugvélar. Þetta á einnig við um tímabundinn innflutning á kynningavörum eða tækjum sem koma til landsins í ákveðin verkefni en eru síðan flutt úr landi aftur.
Viðgerðir á tæknibúnaði erlendis er oft nauðsyn og sérhæfum við okkur í sendingum sem koma aftur til landsins að viðgerð lokinni og bjóðum þá bæði sjó- og flugflutning.