TVG-Zimsen hefur hlotið viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki árið 2011. Viðurkenningin er veitt af Creditinfo sem hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 245 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur. Viðurkenningin var veitt í fyrsta skipti fyrir árið 2010 og þar var TVG-Zimsen einnig á meðal þeirra fyrirtækja sem þá uppfylltu skilyrði félagsins.

 

Eftirfarandi upplýsingar voru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:

-          Að hafa skilað ársreikningum til RSK 2008 til 2010

-          Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum

-          Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð

-          Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð

-          Eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2008 til 2010

-          Að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2008 til 2010

-          Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá

-          Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo