TVG-Zimsen hefur gert samstarfssamning við Modul Transport A/S um að sjá um alla flugfrakt til og frá Danmörku. Starfsstöðin mun starfa undir nafni TVG-Zimsen og vera merkt þannig. Samstarfið tekur gildið frá og með deginum í dag, 1. febrúar.
 
Modul Transport var stofnað árið 1983 og starfar á öllum sviðum flutninga, hvort sem um ræðir sjó-, land- eða flugflutninga. Höfuðstöðvar Modul Transport eru í Hvidovre rétt við Kastrup flugvöll í Kaupmannahöfn en einnig er fyrirtækið með skrifstofu í Vejle.
 
,,Það er mjög ánægjulegt að hafa fengið þetta öfluga fyrirtæki til samstarfs við TVG-Zimsen. Með þessum breytingum getum við boðið upp á betri þjónustu en áður fyrir okkar viðskiptavini. Á þeim tæplega 30 árum sem Modul Transport hefur verið starfrækt hafa flutningar til og frá Íslandi ávallt verið stór hluti af starfsemi fyrirtækisins og starfsmenn þess þekkja því vel til á þeim vettvangi,“ segir Jón Haukur Ísfeld, deildarstjóri flugflutninga hjá TVG-Zimsen.

Hafið samband við þjónustudeild okkar ef einhverjar spurningar vakna í síma 5 600 777 eða sendið okkur póst með því að smella hér.