TVG-Zimsen flytur Guns N' Roses

17.07.2018
TVG-Zimsen flytur Guns N' Roses - Mynd

Það hefur sennilega ekki farið framhjá mörgum að hin goðsagnakennda rokkhljómsveit Guns N' Roses mun halda tónleika hér á landi þann 24. júlí á Laugardalsvelli.
 
Um er að ræða stærstu tónleika Íslandssögunnar hvort sem um er að ræða fólksfjölda á tónleikunum sjálfum eða umfang verkefnisins í heild sinni. Flytja þarf til landsins mikinn búnað sem telur alls um 1300 tonn, 40 feta gámarnir eru alls 21, trailer-vagnarnir eru sem fluttir eru í sjófrakt eru 16 en auk þess bætast við 100 tonn sem koma með flugfrakt.
 
Það er Solstice Productions sem stendur að tónleikunum en TVG-Zimsen hefur átt í góðu samstarfi við fyrirtækið í tengslum við Secret Solstice tónlistarhátíðina undanfarin tvö ár. Friðrik Olafsson, framkvæmdastjóri Solstice, segir flutning á búnaði vera algert lykilatriði þegar kemur að tónleikahaldi. „Það er mikið gleðiefni að eiga áframhaldandi samstarf við TVG-Zimsen um flutning á búnaði fyrir þessa stórtónleika. Tímáætlun og skipulag eru lykilatriði í viðburðaflutningum sem þessum og sérfræðingar þeirra hafa ávallt staðið sig frábærlega varðandi skipulagningu og framkvæmd flutninga.“ 
 
Búast má við miklu sjónarspili í Laugardalnum í lok mánaðarins þar sem risavaxið 65 metra breitt svið verður byggt á Laugardalsvelli, gólf lagt yfir grasvöllinn til að vernda grasið og engu til sparað í ljósum og hljóði. Eldvörpur og reyksprengjur verða þá einstakar í tónlistarsögu Íslands.
 
Til að undirstrika umfang tónleika Guns N’ Roses má geta þess að TVG-Zimsen flutti á síðasta ári búnað fyrir tónleika Rammstein hér á landi, sem fram til þessa hafa verið stærstu tónleikar sem hér hafa verið haldnir. Var þá „aðeins“ um að ræða sautján 40 feta gáma auk nokkurra flugsendinga svo munurinn er umtalsverður. Tónleikar Guns N’ Roses verða því sannarlega stærstu tónleikar sem farið hafa fram á Íslandi.

 

Mynd: Katarina Benzova

Til baka í yfirlit