TVG-Zimsen – Eimskip Cruise Agency býður þjónustu við skemmtiferðaskip sem koma til landsins á hverju sumri og starfar í öllum höfnum landsins með samhæfðri og öflugri stjórnstöð frá Reykjavík.
Meðal þeirrar þjónustu sem TVG-Zimsen – Eimskip Cruise Agency veitir, er aðstoð við áhafnarskipti, útvegun vista, varahluta og læknisþjónustu ásamt öllum samskiptum við höfn, toll og útlendingaeftirlit.
TVG-Zimsen sér einnig um alla þjónustu vegna umhleðslusendinga (transit) sem tengjast komu skemmtiferðaskipa.
Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn Eimskip Cruise Agency hjá TVG-Zimsen í síma 5 600 700. Einnig er hægt að ná í starfsmenn umboðsþjónustunnar í síma 856 0701.