Margra ára reynsla
Starfsfólk TVG-Zimsen er með margra ára reynslu í tollskjalagerð og tekur að sér alla þá þjónustu sem snýr að tollafgreiðslu vörusendinga til landsins. Boðið er upp á tollflokkun, gerð tollskýrslna, innlausn úr tolli og heimkeyrslu.
Fylgiskjöl sem þarf að leggja fram með tollskýrslu eru þessi helst:
- Farmbréf „Original Bill of Lading“
- Vörureikningur
- Pökkunarlisti
- Reikningur fyrir flutningsgjöld
- EUR-skírteini eða EUR-áritun ef um er að ræða vöru frá EFTA eða ESB-löndum
Senda beiðni um tollskýrslugerð hér.
Senda beiðni um útflutningsskýrslu hér.
Hér að neðan getur þú opnað rafrænt umboð um skuldfærslu á aðflutningsgjöldum með rafrænum skilríkjum í síma eða kort.
Ef undirritað umboð er ekki fyrir hendi þarf að greiða aðflutningsgjöld fyrirfram.
Opna umboð fyrir skuldfærsluheimild