TVG-Zimsen er alhliða flutningsmiðlun sem býður alla þjónustu tengda inn- og útflutningi.
Við erum í góðum tengslum við helstu flutningsfyrirtæki heims og nýtum víðtækt þjónustunet og framleiðslukerfi þeirra.
Nánar er farið yfir sögu TVG-Zimsen á söguvefnum.
Viðskiptaupplýsingar TVG-Zimsen
KT/REG.NO.: | 650269-4389 |
VSK NR./VAT NO.: | 11089 |
BANKI/BANK: | LANDSBANKINN - BORGARTÚNI 33 |
REIKNINGSNR./ACCOUNT NO.: | 0111-26-000095 |
SWIFT-NO: | NBIIISRE |
IBAN: | IS14 0111 2600 0095 6502 6943 89 |
Afgreiðslutími
Afgreiðslutími á skrifstofu og vöruhúsi er mánudaga til fimmtudaga kl. 08.00-16.00 og föstudaga kl. 08.00-15.00.
Erlendar skrifstofur
TVG-Zimsen er með sínar eigin skrifstofur í Hollandi og í Bandaríkjunum:
TVG-Zimsen Rotterdam
Waalhaven Z.z. 21
3089 JH Rotterdam
The Netherlands
Contacts: Menno de Waard & Bram Mout
E-mail: rotterdam@tvg.is
Phone: +31 10-751 77 15
TVG-Zimsen USA
Eimskip / TVG-Zimsen C/O Speed Dox
148-36, Guy R Brewer Blvd, Jamaica
NY 11434 USA
Contact: Dave Balli / Manoj Boodhoo
E-mail: airusa@tvg.is
Phone: +1 516-239-3800
Þjónustustefna
Markmið okkar er að veita bestu þjónustu í flutningsmiðlun.
Þjónustustefna TVG-Zimsen var kynnt í byrjun október 2011 en þeir liðir sem urðu fyrir valinu og við teljum mikilvægasta í þjónustu fyrirtækisins eru: jákvætt viðmót, traust, metnaður og snerpa. Við nálgumst öll verkefni með jákvæðu viðmóti og erum alltaf til staðar fyrir viðskiptavini okkar.
Mannauðsstefna
Við metum starfsfólk okkar mikils og höfum mannréttindi og heilbrigt starfsumhverfi að leiðarljósi. Við áttum okkur á fjölbreytni mannauðsins og gerum okkar besta til að veita einstaklingnum frelsi til að nýta áhugasvið sitt og krafta sem best.
Sem dótturfélag Eimskips lýtur starfsemi okkar og dótturfélaga stefnu Eimskips í mannauðsmálum.
Nánar má lesa mannauðsstefnu Eimskips hér
Skipurit TVG-Zimsen
Siðareglur
Sem dótturfélag Eimskips lýtur starfsemi okkar siðareglum Eimskips sem snúa að heiðarleika, ábyrgð og góðu siðferði í starfi.