TRYGGINGAR
TVG-Zimsen selur farmtryggingar í umboði Sjóvá.
Flutningstryggingar fyrir vörusendingar aðrar en bifreiðar og búslóðir sem TVG-Zimsen hefur tekið að sér að annast flutning á til og frá Íslandi. Ef flutningsgjald er greitt erlendis (prepaid) er sendingin EKKI tryggð hjá TVG-Zimsen, nema um annað hafi verið samið.
HVERSU HÁ ER TRYGGINGING?
Sendingar hjá TVG-Zimsen eru tryggðar upp að 3.000.000 ISK. óháð vermæti sendingar.
Ef samanlögð upphæð vörureiknings og flutningsgjalds er 3.000.000 ISK eða hærri er sendingin ekki tryggð umfram þá upphæð. Það er á ábyrgð viðskiptavina að óska eftir tryggingu umfram 3.000.000 ISK og hægt er að hafa samband við starfsfólk TVG-Zimsen til að ganga frá viðbótartryggingu.
Eigin áhætta er 36.000 ISK í hverju tjóni. Ef flutningsgjald er greitt erlendis (prepaid) er sendingin EKKI tryggð hjá TVG-Zimsen, nema um annað hafi verið samið. Sjá nánar í tryggingaskilmálum sem viðskiptamönnum er bent á að kynna sér vandlega.
HVERT Á AÐ TILKYNNA TJÓN?
Hér á eftir fara leiðbeiningar um það hvernig á að bera sig að verði tjón á vörusendingu sem flutt er á vegum TVG-Zimsen til landsins.
Tjón verður að tilkynna innan þriggja daga frá móttöku vöru til viðskiptavinar.
Gögn sem þarf að leggja fram til TVG-Zimsen:
- Senda þarf skriflega tjónakröfu til TVG-Zimsen, þ.e. stutta lýsingu á tjóni (láta ljósmynd fylgja ef hægt er) og upphæð tjónakröfu.
- Farmbréf og flutningstilkynning þarf að fylgja kröfu.
- Erlendur vörureikningur. Ef hluti sendingar hefur skemmst þarf að merkja við á reikningi hvaða hluti það er.
Tjónakröfur vegna flug- og sjósendinga skal senda með tölvupósti á netfang tjónamála. Nánari upplýsingar fást í síma 5 600 777.